Lánasjóður íslenskra námsmanna

19. fundur
Laugardaginn 10. júní 1995, kl. 13:50:43 (656)


[13:50]
     Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er alveg hárrétt hjá hv. þm. að efnisleg umfjöllun af minni hálfu um þetta mál hefur ekki farið fram í þinginu. Það er alveg hárrétt. Ég er alveg tilbúinn til þess að vera við framhaldsumræðu málsins þegar að henni kemur að lýsa þeim sjónarmiðum en það á ekki við undir þessum dagskrárlið sem er Lánasjóður ísl. námsmanna. Ef hv. þm. óskar eftir því er ekkert sjálfsagðara en að verða við þessari ósk og taka þátt í þeirri umræðu þegar þar að kemur.