Fyrirvari í nefndaráliti

20. fundur
Mánudaginn 12. júní 1995, kl. 15:04:08 (660)



[15:04]
     Hjálmar Árnason :
    Herra forseti. Ég vil þakka hv. 8. þm. Reykn. fyrir að taka af mér ómakið, því sem ég ætlaði að koma að síðar. Það er rétt sem hann bendir á að það hafa orðið þau tæknilegu mistök --- og ég undirstrika tæknilegu mistök --- að sá fyrirvari sem ég ávallt hef lýst kemur ekki fram í þingskjalinu. Hins vegar á þetta að vera glöggum þingmönnum nokkuð ljóst því að þeim efasemdum hef ég lýst úr þessum ræðustóli, þeim efasemdum sem minn fyrirvari byggir á.