[13:46]
Steingrímur J. Sigfússon :
Herra forseti. Þessi stafliður varðar tollun eða tollunarstig á svonefndum lágmarksmarkaðsaðgangi. Eins og komið hefur fram tökum við ekki afstöðu til þess tollunarstigs sem lagt er til í frv. en þessi brtt. gengur hins vegar að okkar mati allt of langt í þá átt að lækka þetta frá því sem samningstilboð Íslands gerði ráð fyrir. Eins og sjá má mundi brtt., ef samþykkt yrði, fela í sér helmingslækkun á tollunarstigi á lágmarksmarkaðsaðgangi eða sem sagt helmingi lægra tollstig heldur en samningstilboð Íslands fól í sér. Það teljum við of langt gengið og leggjumst því gegn þessum hluta brtt. en sitjum hjá við stafliði b og c, sem koma hér til atkvæða á eftir.