[16:26]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það er aðeins örlítið sem mig langaði til að ræða hér í andsvari. Það var margt ágætt og skynsamlegt sem kom fram í ræðu hv. þm. sem verður að bíða betri tíma að ræða. Það er þó einkum eitt atriði, það snertir stjórn fyrirtækisins og skipulag. Ég vil taka það sérstaklega fram hér og nú, að frumkvæðið að þessu var hjá nefndinni sjálfri, nefndarmeirihlutanum sjálfum. Ég féllst á að sett yrði í lögin ákvæði sem heimilaði að setja stjórn á fyrirtækið. Síðar var ákveðið að gera þetta að skyldu og út af fyrir sig tel ég það ekki vera stórt mál. Það er að mínu mati jafnvel eðlilegt að fyrirtækinu sé sett stjórn og stefnumótunin sett með ákveðnum hætti inn í framtíðina af því að eðli fyrirtækisins breytist óneitanlega.
Ég vil taka það fram að fjmrh. hefur og hefur alltaf haft heimild til að setja þessu fyrirtæki stjórn og að setja fyrirtækinu skipulag. Það hafa fjmrh. gert við önnur fyrirtæki sem eru mjög svipuð eins og t.d. Lyfjaverslun ríkisins sem heitir nú Lyfjaverslun Íslands. Þar setti fjmrh. stjórn, löngu áður en ég kom í fjmrn., þar á meðal forveri minn, hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson, án þess að það væri nokkur bein lagaheimild. Það er enginn vandi að gera það eða setja fyrirtækinu skipulag. Þetta vil ég að komi skýrt fram þannig að menn séu ekki að gera of mikið úr því þótt fyrirtækinu sé sett stjórn hér með lögum. Ég hef aflað upplýsinga um það hvort talað hafi verið við forstjóra fyrirtækisins og mér er sagt, ég sel það ekki dýrara en ég keypti það, að hann hafi verið látinn vita af þessari tillögu áður en hún kom fram í nefndinni.