[15:59]
Ólafur Ragnar Grímsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Aldeilis er það stórfurðulegt að jafnmarkaðsvænn maður og hv. þm. Pétur Blöndal skuli ekki átta sig á því að ef t.d. Bónus flytur inn, eitt fyrirtæki, 3% af heildarmarkaði tiltekinnar vöru og býður það í sínum verslunum á alveg sérstaklega lágu verði eins og Bónus gerir með fjöldann allan af vörutegundum, þá er það tvímælalaust hagsmunamál fyrir neytendur, tvímælalaust. Satt að segja var sú markaðskenning sem hv. þm. var að flytja hér til að réttlæta stuðning sinn við frv. í óbreyttri mynd afneitun á því að Bónus ætti nokkurn rétt á sér vegna þess að kaupmaður sem sæi annan kaupmann bjóða vöru á 1.500 kr. væri ruglaður ef hann byði vöruna á kannski minna en 1.400 kr.
Bónus hefur verið byggt upp á því, hv. þm., að eigandi verslunarinnar lagði metnað sinn í að fara eins langt niður með vöruna hvað sem leið vöruverði keppinautanna. Þetta þekki ég mjög vel, sérstaklega á síðari árum, með Hagkaupsverslun annars vegar á Seltjarnarnesi og hins vegar Bónusverslun þannig að maður hefur getað borið saman báðar þessar verslanakeðjur sem hafa náð markaði út af lágu vöruverði.
Auðvitað er það hagsmunamál fyrir neytendur að ákvæðið um 3--5% markaðsaðgang komi í reynd til framkvæmdar og leiði til lækkaðs vöruverðs. Og að fara að flytja þá kenningu í ræðustól að það sé á móti öllum markaðslögmálum að neytendur geti grætt eitthvað á því, 3--5% reglan sé bara fyrir kaupmanninn til að hann geti grætt meira. Það er satt að segja alveg furðuleg kenning.