[16:13]
Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
Herra forseti. Ég vildi gjarnan vegna brtt. sem hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon hefur kynnt gefa yfirlýsingu af ríkisstjórnarinnar hálfu um að ríkisstjórnin er tilbúin til þess að lýsa því yfir að lögð verði fram greinargerð fyrir árslok 1996 um þróun mála samkvæmt þeim heimildum sem við erum að leggja til að verði lögfestar hér þannig að ríkisstjórn og þing geti hvort í sínu lagi eða sameiginlega tekið ákvörðun um það hvort endurskoðunar sé þörf og þá í hvaða mæli.