[10:19]
Umhverfisráðherra (Guðmundur Bjarnason) :
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að lengja umræðuna. Ég vil aðeins taka undir orð hv. þm. Tómasar Inga Olrich í andsvari og þakka nefndarmönnum öllum, bæði stjórnarliðum, stjórnarandstöðuþingmönnum og formanni fyrir það hversu vel hefur verið unnið að málinu og hversu skjótt nefndin hefur þó unnið mikið verk sem við sjáum bæði á breytingartillögunum, sem hér liggja fyrir, og þeim efnistökum sem ég veit að nefndin tók á þessu máli af þeim upplýsingum sem ég hef fengið af nefndarstarfinu og viðræðum við einstaka nefndarmenn. Fyrir það þakka ég og tel fulla ástæðu til þess því að vissulega er rétt eins og hér hefur komið fram hjá hv. þm. Kristínu Halldórsdóttur að tíminn var naumur. Mikil áhersla var lögð á það af minni hálfu ef nokkur kostur væri að fá málið afgreitt. Eins og fram kom er búið að leggja málið oft fyrir þing þó að það hafi ekki fengið ítarlega umfjöllun og ég þakka fyrir að það skuli hafa tekist að vinna þetta.
Ég hlýt að harma að hv. nefndarmenn sjá ástæðu til þess að átelja vinnubrögð ráðuneytisins eða starfsmanna þess við frumvarpsgerðina og frumvarpssmíðina og hef svo sem litlu við það að bæta því að málið er nánast fullunnið þegar ég kem að málinu eða frumvarpsvinnunni í tíð fyrri ríkisstjórnar þó að það megi kannski segja að sá veldur miklu sem upphafinu veldur en það var einmitt í tíð þess einstaklings, sem hér stendur nú, þegar hann var heilbr.- og trmrh. sem vinnan hófst því að þá heyrði þetta mál og sú löggjöf undir heilbr.- og trmrn. eins og öll starfsemi Hollustuverndar ríkisins. En þó segi ég eins og hv. þm. vita að okkar ágætu embættismenn vinna oft undir miklu álagi. Það er mikið sem þarf að fara fram í ráðuneytum, kannski tiltölulega litlum ráðuneytum eins og umhvrn. sem hefur ekki mikinn mannafla og sumt af svona frumvarpsvinnu, ekki síst í þessu tilviki þar sem verið er að aðlaga löggjöf að samningum við aðrar þjóðir, er vafalaust þýðingar að einhverju leyti þó að ég þekki það ekki nákvæmlega, það er hætt við því. Ýmsar ástæður geta verið fyrir því að textinn er ekki nægilega vandaður og málfar ekki heldur og ég hygg að það sé mjög góð ábending hjá hv. þm. Kristínu Halldórsdóttur að það sé einhver ákveðinn farvegur sem þessi frumvörp fara í hvað varðar málfar því að það er afar óskemmtilegt fyrir þingið að senda frá sér frumvörp sem eru ekki á vönduðu íslensku máli.
Þá vil ég að lokum, af því að ég ætla ekki að lengja umræðuna, lýsa samþykki mínu og stuðningi við þær breytingartillögur sem liggja fyrir. Ég veit að þær hafa verið unnar í samráði og samstarfi við embættismenn ráðuneytisins og ég lýsi því yfir að ég tel það eðlilegt að ráðuneytið taki tillit til þeirrar ábendingar sem er í nefndarálitinu á þskj. 101 um samanburð og samræmingu annarra skyldra laga sem varða þennan mikilvæga málaflokk.
Ég endurtek þakkir mínar til starfa hv. nefndarmanna fyrir störf þeirra.