Framleiðsla og sala á búvörum

25. fundur
Fimmtudaginn 15. júní 1995, kl. 11:03:29 (942)


[11:03]
     Frsm. landbn. (Guðni Ágústsson) :
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti landbn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum.
    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund til viðræðna um það Ara Teitsson, formann Bændasamtakanna, Sigurgeir Þorgeirsson, forstjóra Bændasamtakanna, Guðmund Sigþórsson, skrifstofustjóra í landbúnaðarráðuneytinu, Gísla Karlsson frá Framleiðsluráði landbúnaðarins og Ingólf Bender, hagfræðing á fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með svofelldum breytingum:
    1. Í stað 1. gr. komi nýtt ákvæði til bráðabirgða er orðist svo:
    Til að jafna skilaverð til framleiðenda fyrir afurðir sem seldar eru á erlendum mörkuðum samkvæmt samkomulagi sem kveðið er á um í 62. gr. laganna getur landbúnaðarráðherra heimilað innheimtu á verðjöfnunargjaldi sem má nema allt að 10% af því verði sem kemur til skila við útflutning (fob) hjá hverri afurðastöð. Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um innheimtu og ráðstöfun verðmiðlunargjaldsins. Ákvæði þetta gildir til 15. október 1996.
    2. Við 3. gr. Í stað orðanna ,,1. mars 1996`` komi: 1. nóvember 1995.
    3. Á eftir 3. gr., er verði 2. gr. komi ný grein er orðist svo:
    Lög þessi öðlast þegar gildi.

    Breyting nefndarinnar felur í sér að efnisákvæði núverandi 1. gr. frumvarpsins um verðmiðlunargjald verði flutt í ákvæði til bráðabirgða og jafnframt verði í bráðabirgðaákvæðinu kveðið á um að það gildi til 15. október 1996. Þá er sú breyting gerð á 3. gr. að heimild til frestunar á ákvörðun heildargreiðslumarks verðlagsársins 1996--1997 miðast við 1. nóvember 1995 í stað 1. mars 1996 og er það gert til að hvetja til sem skjótastrar lausnar á vanda sauðfjárbænda.
    Landbúnaðarráðherra mun hafa samráð við nefndina um setningu þeirrar reglugerðar sem kveðið er á um að sett verði samkvæmt hinu nýja bráðabirgðaákvæði um innheimtu og ráðstöfun verðmiðlunargjaldsins.
    Kristín Ástgeirsdóttir sat fundinn sem áheyrnarfulltrúi.
    Undir þetta nefndarálit skrifa allir hv. þingmenn sem sæti eiga í landbn. en nokkrir þeirra með fyrirvara. Þeir sem undir þetta rita eru Guðni Ágústsson, Margrét Frímannsdóttir, með fyrirvara, Hjálmar Jónsson, Lúðvík Bergvinsson, með fyrirvara, Árni M. Mathiesen, með fyrirvara, Guðjón Guðmundsson, Magnús Stefánsson, Ágúst Einarsson, með fyrirvara, og Egill Jónsson.
    Ég vil skýra frá því að sú skoðun kom fram í starfi nefndarinnar að atvinnugreinin sjálf, landbúnaðurinn, þurfi sem fyrst að móta stefnu sína í útflutningsmálum, t.d. með stofnun sterkra sölusamtaka.
    Að lokum vil ég þakka landbúnaðarnefndarmönnum öllum gott samstarf og góðan vilja sem þeir hafa sýnt í starfi sínu á þessu stutta þingi.