[14:17]
Guðni Ágústsson :
Hæstv. forseti. Ég vil eins og fleiri taka undir það að hér er hið besta mál flutt sem ég get stutt í hvívetna og tel mikilvægt í þeim aðgerðum sem þarf að ráðast í gagnvart íslenskum heimilum sem hafa átt í miklum erfiðleikum um margra ára skeið.
Ég harma að stuttur tími frá því að ný ríkisstjórn tók við völdum hefur ekki gefið færi á því að fullkomna það verk sem á að ráðast í. Þess vegna lá það fyrir þegar þing hófst í vor að þetta mál var ekki boðað þess vegna þannig að það var þingmönnum ljóst. Hins vegar er skemmtilegt á þinginu að hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþb., lætur alltaf eins og stóri stríðnisstrákurinn í bekknum, stríðir frá morgni til kvölds og heldur að hann sé að gera lukku með slíku. En ég vona samt sem áður að hann skilji að Framsfl. er fúlasta alvara í öllu sem hann hefur sagt og gert í þessum málum. ( ÓRG: Það er komið stjfrv. . . . ) Það er hárrétt, hv. þm., að Framsfl. boðaði heilmikið í þessum efnum í kosningabaráttunni, gaf fyrirheit um að nýir og betri tímar skyldu taka við. ( ÓRG: Hvenær koma þeir?) Þeir eru þegar hafnir. Umhverfið á Íslandi er með öðrum hætti eftir að Alþfl. fór í frí. ( Gripið fram í: Ykkar tími er kominn.) Okkar tími er kominn og við munum standa við stóru orðin. ( ÓRG: Hvenær?) Hvenær? ( ÓRG: Já, hvenær?) Vinnan er hafin eins og hér hefur komið fram. ( ÓRG: Hjá hverjum?) Hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson sem er ekki neitt unglamb lengur hefur sjálfur setið í ríkisstjórn og verið ráðherra. Hann veit að það gerist ekki allt á einum degi. Menn eiga sína hveitibrauðsdaga, (Gripið fram í.) sína hveitibrauðsdaga.
( Forseti (StB) : Ég vil biðja hv. þm. að gefa ræðumanninum hljóð.)
Ég trúi því að núv. hæstv. ráðherrar muni leggja á borðið í haust þau þingmál strax sem þarf í þessum efnum og hefja aðrar þær aðgerðir sem munu duga til að koma til móts við skuldugar fjölskyldur sem eiga nú í erfiðleikum. Ég er í engum vafa, ég get endurtekið það, ég tel að heill og hamingja þúsunda Íslendinga velti á því að núv. hæstv. ríkisstjórn takist að skapa aðstæður til að auka þjóðarframleiðslu og hagvöxt á Íslandi. Atvinnuleysið og döpur lífskjör eru tímasprengja sem tifar í mínum huga. Hún getur sprungið í andlitið á þessari ríkisstjórn ef hún stendur ekki í stykkinu. ( ÓRG: Það er rétt.) Ég vil þó segja á þessari stundu að Framsfl. tók þetta mál upp fjórum sinnum á þremur síðustu árum án þess að Alþfl. hefði neinar aðgerðir í frammi. Ég hef alltaf haft grun um að það hafi kannski verið þröskuldur í veginum fyrir að þeir næðu því fram. Ég trúi því ekki að það hafi verið viljaleysi sem réð því. Það kann að vera að Sjálfstfl. hafi staðið að einhverju leyti í vegi fyrir því að ráðist væri í þessar miklu aðgerðir. En ég fullyrði að það hefur komið fram nú í nýrri ríkisstjórn að fullur vilji og samstaða er til þess að leysa þetta mál.
Ég vil segja að lokum, herra forseti, að ég gef hæstv. ráðherrum einhvern tíma enn til þess að koma til móts við þessi mál. En það er ljóst í mínum huga að ég mun gera kröfu til þess sem þingmaður að skuldbreyting aldarinnar eigi sér stað, að það verði komið til móts við fólkið í landinu sem margt hefur vegna aðgerðaleysis verið að tapa eignum sínum. Framsfl. mun beita oddinum þar og ná málinu fram.