Þingfrestun

29. fundur
Fimmtudaginn 15. júní 1995, kl. 20:49:52 (1054)


[20:49]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    ,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:

    Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 119. löggjafarþings, frá 15. júní 1995.

Gjört á Bessastöðum, 15. júní 1995.

Vigdís Finnbogadóttir.

_____________
Davíð Oddsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

    Samkvæmt þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi hér með yfir því að fundum Alþingis, 119. löggjafarþings, er frestað.
    Leyfi ég mér að óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins svo og landsmönnum öllum allra heilla.