Endurskoðun laga um náttúruvernd

6. fundur
Miðvikudaginn 24. maí 1995, kl. 13:53:41 (230)


[13:53]
     Hjörleifur Guttormsson :
    Virðulegi forseti. Viðhorf hæstv. ráðherra sýnast mér vera mjög eðlileg til þessa máls. Ég held að við þurfum að móta hér skýrar, almennar reglur og gæta þess að hagnaðarsjónarmið einstakra rétthafa, landeigenda sem annarra, sé ekki það sem ráði ferðinni í þessu máli. Hér verður að horfa til framtíðar. Sjálfur var ég að líta á þessi efni með tilliti til lagabóta á síðasta þingi og má vera að því verði hreyft að hausti. En ég æski sem bestrar samvinnu við hæstv. ráðherra um þessi efni.