Ferill 33. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
119. löggjafarþing. – 33 . mál.
37. Fyrirspurn
til forsætisráðherra um flutning ríkisstofnana út á land.
Frá Hjálmari Árnasyni.
1 . Hvað líður framkvæmd tillagna nefndar frá 15. júlí 1993 um flutning ríkisstofnana út á land?
2 . Má búast við að tillaga nefndarinnar um flutning Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja verði framkvæmd?
3 . Hefur ný ríkisstjórn í hyggju að kanna fleiri þætti sem snerta aukna þjónustu og flutning ríkisstofnana á landsbyggðina?