Ferill 40. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
119. löggjafarþing. – 40 . mál.
62. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um einkaleyfi, nr. 17/1991, sbr. lög nr. 67/1993.
(Lagt fyrir Alþingi á 119. löggjafarþingi 1995.)
1. gr.
2. mgr. 75. gr. laganna orðast svo:
Einkaleyfi fyrir lækningalyfjum er unnt að veita eftir 1. janúar 1996 á grundvelli umsókna sem lagðar eru inn eftir 1. janúar 1995. Nánar verður kveðið á um meðferð slíkra umsókna í reglugerð.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp þetta tekur til breytinga á einkaleyfalögum og er flutt í því skyni að tryggja að lögin séu í samræmi við samninginn um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.
Lög um einkaleyfi, nr. 17/1991, tóku gildi 1. janúar 1992. Samkvæmt ákvæði 2. mgr. 75. gr. laganna var þó ekki unnt að fá einkaleyfi fyrir lækningalyfjum fyrr en að liðnum fimm árum frá gildistöku laganna.
Samkvæmt 27. gr. samningsins um hugverkarétt í viðskiptum, viðauki 1C við samninginn um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, skulu aðildaríkin heimila veitingu einkaleyfa fyr
Samkvæmt 8. mgr. 70. gr. samnings um hugverkarétt í viðskiptum skal aðildarríki, sem ekki veitir einkaleyfi á lækningalyfjum við gildistöku samningsins, tryggja að unnt sé að leggja inn umsóknir fyrir slíkum uppfinningum frá gildistöku samningsins. Því er ljóst að veita skal slíkum umsóknum viðtöku frá 1. janúar 1995 þótt ekki verði þær teknar til meðferðar fyrr en 1. janúar 1996.