Ferill 4. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
119. löggjafarþing. – 4 . mál.


123. Frumvarp til laga



um gjald af áfengi.

(Eftir 2. umr., 15. júní.)



1. gr.

    Greiða skal til ríkissjóðs sérstakt gjald, áfengisgjald, af áfengi samkvæmt lögum þessum.
    Áfengi samkvæmt lögum þessum telst hver sá vökvi sem í er meira en 2,25% af vínanda að rúmmáli. Áfengismagn og áfengisinnihald skal ákveða við 20°C.

2. gr.


    Gjaldskyldir samkvæmt lögum þessum eru allir þeir sem flytja inn eða framleiða áfengi hér á landi til sölu eða vinnslu.
    Gjaldskyldir eru enn fremur þeir sem flytja með sér til landsins áfengi til eigin nota, svo og þeir sem fá sent áfengi erlendis frá án þess að það sé til sölu eða vinnslu. Heimilt er með reglugerð að takmarka innflutning samkvæmt þessari málsgrein við ákveðnar vörutegundir, hámarksmagn eða hámarksverðmæti og að setja skilyrði fyrir því hverjir megi flytja inn sam kvæmt henni.

3. gr.


    Gjald þeirra sem gjaldskyldir eru skv. 1. mgr. 2. gr. skal vera 58,70 kr. á hvern sentilítra af vínanda umfram 2,25 sentilítra í hverjum lítra áfengis.
    

4. gr.


    Af innflutningi þeirra sem gjaldskyldir eru skv. 2. mgr. 2. gr. skal greiða gjald sem hér seg ir af hverjum lítra hins áfenga drykkjar:
    Öl með allt að 15% af hreinum vínanda að rúmmáli           300 kr.
Vín með allt að 15% af hreinum vínanda að rúmmáli      600 kr.
    Aðrir áfengir drykkir:
—    með 22% af hreinum vínanda að rúmmáli eða minna     1.200 kr.
—    með yfir 22% til og með 32% af hreinum vínanda að rúmmáli     1.800 kr.
—    með yfir 32% til og með 40% af hreinum vínanda að rúmmáli     2.400 kr.
—    með yfir 40% til og með 50% af hreinum vínanda að rúmmáli     3.000 kr.
—    með yfir 50% til og með 60% af hreinum vínanda að rúmmáli     3.600 kr.
—    með yfir 60% af hreinum vínanda að rúmmáli     7.000 kr.
    

5. gr.


    Þeir sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr. 2. gr. skulu ótilkvaddir senda tilkynningu um starf semi sína til skattstjóra þar sem þeir eru heimilisfastir. Þeir sem hefja gjaldskylda starfsemi skulu senda tilkynningu áður en starfsemin hefst.
    Í tilkynningu skal tilgreina nafn, firmanafn, heimili og kennitölu rekstraraðila og hvers konar framleiðslu eða innflutning sé um að ræða.
    Skattstjórar skulu hver í sínu umdæmi halda skrár yfir alla þá sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr. 2. gr. laga þessara.
    Fjármálaráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um upplýsingaskyldu þeirra sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr. 2. gr., svo og skyldu þeirra til að halda framleiðslu- og birgðabók hald.

6. gr.


    Gjald af innfluttu áfengi skal greitt við tollafgreiðslu þess. Fjármálaráðherra er heimilt með reglugerð að veita gjaldfrest á áfengisgjaldi við innflutning í allt að tvær vikur enda séu settar fullnægjandi tryggingar.
    Af áfengi, sem framleitt er innan lands til sölu þar, reiknast gjald við sölu eða afhendingu vörunnar frá verksmiðju eða framleiðanda til kaupanda og skiptir ekki máli hvenær eða með hvaða hætti greiðsla fer fram.
    Þeir sem skyldir eru til að innheimta gjald skv. 2. mgr. skulu ótilkvaddir greiða innheimtu manni ríkissjóðs í umdæmi því þar sem þeir eru heimilisfastir áfengisgjald sem þeim ber að standa skil á. Greiðslu skal fylgja skýrsla á þar til gerðu eyðublaði um hina gjaldskyldu sölu.
    Hvert uppgjörstímabil vegna gjaldskyldrar innlendrar framleiðslu er tvær vikur. Gjalddagi er annar virkur dagur eftir lok uppgjörstímabils.
    Fjármálaráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um innheimtu áfengisgjalds, þar á meðal um tryggingar fyrir skilum á gjaldi skv. 1. og 2. mgr.

7. gr.


    Fjármálaráðherra er heimilt með reglugerð að ákveða að áfengisgjald skuli fellt niður eða endurgreitt í eftirtöldum tilvikum:
     1.     Við sölu áfengis úr landi.
     2.     Við innflutning og sölu á áfengi til fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli.
     3.     Við innflutning og sölu á áfengi til aðila sem njóta skattfrelsis hér á landi samkvæmt alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að og aðila sem ríkisstjórn ákveður.
     4.     Við innflutning og sölu á áfengi til framleiðslu á vörum sem eru gjaldskyldar samkvæmt lögum þessum til framleiðenda sem hafa leyfi til að selja áfengi skv. 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. áfengislaga.
     5.     Af áfengi að tilteknu hámarki sem ferðamenn og farmenn hafa með sér inn í landið til eigin nota.
    Fjármálaráðherra er heimilt að lækka gjald á áfengi sem flutt er inn eða selt til tollfrjálsra verslana og tollfrjálsra forðageymslna, svo og lækna og lyfsala vegna áfengis sem talið er upp í lyfjaskrá og selt er sem lyf, sbr. 7. tölul. 1. mgr. 11. gr. áfengislaga, og áfengis sem selt er skv. 8. tölul. 1. mgr. 11. gr. sömu laga svo og að endurgreiða gjald sem áður hafði verið inn heimt af áfengi, sem ráðstafað er samkvæmt þessari grein eða er endursent úr landi.

8. gr.


    Af innheimtu gjaldi skv. 3. gr. skal 1% renna í Forvarnasjóð. Tilgangur sjóðsins skal vera að stuðla að áfengisvörnum. Styrki skal veita úr sjóðnum til forvarnarstarfa á verkefnagrund velli. Heilbrigðisráðherra skipar fjögurra manna sjóðstjórn. Fjármálaráðherra, menntamálaráð herra og dómsmálaráðherra tilnefna einn stjórnarmann hver en þann fjórða skipar heilbrigðis ráðherra án tilnefningar og skal hann vera formaður stjórnar. Heilbrigðisráðherra setur nánari reglur um sjóðinn með reglugerð.

9. gr.


    Áfengisgjald skv. 3. og 4. gr. er grunngjald sem fjármálaráðherra er heimilt með reglugerð að víkja frá um allt að 5% til hækkunar eða lækkunar.

10. gr.


    Að því leyti sem eigi er ákveðið í lögum þessum um gjaldskyldu, gjaldfrelsi, úrskurð um flokkun til gjaldskyldu, álagningu, innheimtu, lögvernd, sektir, viðurlög, refsingar og aðra framkvæmd varðandi gjald af innfluttu áfengi samkvæmt lögum þessum skulu gilda eftir því sem við getur átt ákvæði tollalaga.
    Að því leyti sem ekki eru ákvæði í lögum þessum um álagningu, innheimtu, tilhögun bók halds, framtöl, eftirlit, stöðvun atvinnurekstrar, viðurlög, sektir, refsingar og aðra framkvæmd varðandi gjald samkvæmt lögum þessum af áfengi, sem er framleitt eða unnið að einhverju leyti hér á landi, skulu gilda eftir því sem við getur átt ákvæði laga um virðisaukaskatt og ákvæði reglugerða og annarra fyrirmæla settra samkvæmt þeim lögum, svo og ákvæði laga um vörugjald.
    

11. gr.


    Ráðherra er heimilt að setja með reglugerð nánari fyrirmæli um framkvæmd laga þessara.

12. gr.


    Lög þessi öðlast gildi 1. september 1995.
    

Ákvæði til bráðabirgða.


    Greiða skal áfengisgjald samkvæmt lögum þessum af framleiðslubirgðum og ótollafgreidd um innflutningsvörum 1. júlí 1995.