Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 133, 119. löggjafarþing 3. mál: verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf (innflutningur áfengis).
Lög nr. 95 28. júní 1995.

Lög um breyting á lögum nr. 63/1969, um verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf, með síðari breytingum.


1. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:
  1. 1. mgr. orðast svo:
  2.      Innflutningur til landsins á vínanda og áfengi, sem í er meira en 2,25% af vínanda að rúmmáli, fer eftir ákvæðum áfengislaga.
  3. 2. mgr. orðast svo:
  4.      Ríkisstjórninni einni er heimilt að flytja inn frá útlöndum tóbak, hvort heldur er unnið eða óunnið og til hvers sem það er ætlað.


2. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
  1. 1. mgr. orðast svo:
  2.      Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins annast innflutning og innkaup á vínanda, áfengi og tóbaki samkvæmt lögum þessum og dreifingu þessara vara undir yfirstjórn fjármálaráðherra. Þess skal gætt að jafnræði gildi gagnvart öllum áfengisbirgjum.
  3. 2. mgr. orðast svo:
  4.      Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins skal einni heimil starfræksla tóbaksgerðar.
  5. 3. mgr. orðast svo:
  6.      Fjármálaráðherra veitir leyfi til innflutnings og heildsölu á áfengi, svo og til framleiðslu áfengra drykkja, enda sé slík framleiðsla, sala eða innflutningur ætluð til sölu samkvæmt ákvæðum áfengislaga. Leyfi til heildsölu á áfengi má veita innflytjanda áfengis, svo og öðrum þeim sem hyggjast endurselja áfengi frá framleiðanda eða innflytjanda.
  7. 4. mgr. orðast svo:
  8.      Fjármálaráðherra er heimilt að setja skilyrði fyrir því að leyfi sé veitt til framleiðslu áfengis og kveða á um eftirlit.
  9. Við greinina bætist ný málsgrein sem orðast svo:
  10.      Ráðherra setur með reglugerð nánari reglur um veitingu leyfis skv. 3. mgr. Skal þar m.a. kveðið á um skilyrði fyrir leyfisveitingu, gildistíma leyfis, afturköllun þess, um auðkenni á áfengi sem látið er af hendi og eftirlit með starfsemi leyfishafa.


3. gr.

     Á eftir 1. málsl. 3. gr. laganna kemur nýr málsliður svohljóðandi: Verð í smásöluverslunum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á hverri vöru fyrir sig skal vera það sama hvar sem er á landinu.

4. gr.

     Við 4. gr. laganna bætist ný málsgrein, 2. mgr., svohljóðandi:
     Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins skal starfa í tveimur deildum er séu aðgreindar rekstrarlega og fjárhagslega. Skal önnur deildin hafa með höndum innflutning og heildsölu áfengis en hin skal annast smásölu áfengis. Fjármálaráðherra skal skipa Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins stjórn og setja með reglugerð nánari ákvæði um skipulag hennar.

5. gr.

     1. málsl. 5. gr. laganna orðast svo: Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins selur áfengi innan lands, sbr. 11. gr. áfengislaga.

6. gr.

     7. gr. laganna fellur brott.

7. gr.

     8. gr. laganna orðast svo:
     Leggja skal hald á vörur þær sem lög þessi taka til og inn eru fluttar eða framleiddar í heimildarleysi. Innfluttar vörur skulu afhentar Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins til ráðstöfunar.

8. gr.

     Heiti laganna verður: Lög um verslun með áfengi og tóbak.

9. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. desember 1995.

Samþykkt á Alþingi 15. júní 1995.