Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 143, 119. löggjafarþing 2. mál: stjórnarskipunarlög (endurskoðun ríkisreikninga, kjördagur).
Lög nr. 100 28. júní 1995.
Endurskoðun á fjárreiðum ríkisins, stofnana þess og ríkisfyrirtækja skal fara fram á vegum Alþingis og í umboði þess eftir nánari fyrirmælum í lögum.
Ákvæði til bráðabirgða.
Þrátt fyrir ákvæði
31. og
45. gr. stjórnarskrárinnar skulu næstu reglulegar alþingiskosningar fara fram annan laugardag í maí 1999 nema Alþingi hafi áður verið rofið.
Þingskjal 143, 119. löggjafarþing 2. mál: stjórnarskipunarlög (endurskoðun ríkisreikninga, kjördagur).
Lög nr. 100 28. júní 1995.
Stjórnarskipunarlög um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33 17. júní 1944, með síðari breytingum.
1. gr.
43. gr. orðast svo:Endurskoðun á fjárreiðum ríkisins, stofnana þess og ríkisfyrirtækja skal fara fram á vegum Alþingis og í umboði þess eftir nánari fyrirmælum í lögum.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Umboð þingkjörinna yfirskoðunarmanna ríkisreiknings fellur úr gildi er þeir hafa lokið skoðun sinni á ríkisreikningi fyrir árið 1994.3. gr.
Samþykkt á Alþingi 15. júní 1995.