[13:59]
Fyrirspyrjandi (Hjálmar Árnason):
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir greinargóð svör sem og hv. þm. Guðjóni Guðmundssyni fyrir hans innlegg í umræðuna. Þá vil ég sérstaklega fagna því sem hv. þm. Guðjón Guðmundsson minntist hér á, framkomið frumvarp um sjóvarnir, en fyrir tilviljun að því er virðist var því frumvarpi dreift hér í dag. En eins og fram kom í máli hv. þingmanns er mikil nauðsyn á að fá lög um sjóvarnir. Það er ekki óeðlilegt að Suðurland og Reykjanes skuli hafa um 60% af fjárveitingum til sjóvarna á þeim jarðfræðilegu rökum sem nefnd voru hér áður. En eins og fram kom í máli hæstv. ráðherra er ekki nóg að gert í fjárveitingum þrátt fyrir ítarlegar skýrslur og úttektir á nauðsyn aðgerða. Ég tel því ekki óeðlilegt að þær séu enn endurskoðaðar, ekki síst í ljósi þeirra náttúruhamfara sem hér urðu í októbermánuði og kunna að hafa breytt forsendum verulega. Hins vegar mun ég ásamt örugglega öðrum þingmönnum taka frýjunarorðum ráðherra um stuðning við næstu fjárlagagerð þannig að konungur geti siglt þegar byrjar.