[14:05]
Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Spurt er: ,,Hefur ríkissjóður á sl. fjórum árum tekið þátt í kaupum eða viðhaldi á eldri hafnar- eða upptökumannvirkjum?`` Svar: Samgrn. veitti á grundvelli 24. og 26. gr. hafnalaga fé til kaupa á skipalyftu á Akranesi á sl. ári. Kaupverð skipalyftunnar var 40 millj. kr. Hlutur ríkisins nemur 40% eða 16 millj. kr. Aðrir styrkir hafa ekki verið veittir á síðustu fjórum árum til kaupa á eldri upptökumannvirkjum.
Spurt er: ,,Hefur verið gerð greining á þörfum fyrir upptökumannvirki til skipaviðgerða? Liggur slík greining til grundvallar við núverandi forgangsröð og áætlanagerð um upptökumannvirki?`` Svar: Nei. slík heildargreining hefur ekki verið gerð á vegum samgrn.
Spurt er: ,,Hafa fjárveitingar ríkisins til upptökumannvirkja, til skipasmíða og skipaviðgerða á sl. fimm árum skekkt eðlilega samkeppnisstöðu fyrirtækja í skipaviðgerðum í landinu?`` Svar: Leiða má að því líkur að styrkur til kaupa á skipalyftu á Akranesi hafi gert það að verkum að sú lyfta sé enn í notkun. Á vegum samgrn. hefur hins vegar engin fjárveiting runnið til skipasmíða og skipaviðgerða enda heyrir það undir iðnrn.
Spurt er: ,,Hefur verið unnið í samræmi við niðurstöður skýrslu ráðgjafarfyrirtækisins A\&P Appledore International Ltd., sem var unnin fyrir iðnaðarráðuneytið 1989, en í þeirri skýrslu var varað við frekari fjárfestingum í upptökumannvirkjum í landinu? Gilda þær enn um hagkvæmni skipasmíðaiðnaðarins í landinu?`` Svar: Nei. Þessi skýrsla er úrelt og á ekki rétt á sér.