Samningsveð

Fimmtudaginn 01. febrúar 1996, kl. 12:45:23 (2625)

1996-02-01 12:45:23# 120. lþ. 82.3 fundur 274. mál: #A samningsveð# frv., SP (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur


[12:45]

Sólveig Pétursdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar aðeins til að spyrja hv. þm. að því hvert sé álit hennar á því að þegar verið sé að setja heildarlöggjöf um samningsveð og atriði eins og hér um ræðir er tekið út úr frv., hver sé þá réttarstaðan í þessum efnum.