[14:23]
Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég er alls ekki sammála hv. þm. um að veiðileyfagjald fari ekki heim og saman við fyrri röksemdir mínar. Ég tel að það mundi breyta verulega bæði um veðsetningarásókn bankastofnana og því hvernig veiðiheimildir væru fluttar á milli skipa ef boðið yrði í aflaheimildir eða þær leigðar á sanngjörnu verði.
En ég vil fyrst og fremst spyrja hv. þm. hvort það sé afstaða Alþb. almennt að hugmyndin um veiðileyfagjald samræmist ekki umræðunni um sameignarákvæði fiskveiðistjórnunarlaganna.