Gjald af áfengi

Þriðjudaginn 06. febrúar 1996, kl. 15:25:55 (2747)

1996-02-06 15:25:55# 120. lþ. 84.9 fundur 269. mál: #A gjald af áfengi# (forvarnasjóður) frv. 85/1996, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 84. fundur


[15:25]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Vegna orða hv. þm. vill forseti taka fram að það eru ekki beint haldnir sérstakir fundir í þinginu vegna frumvarpa eða þingsályktunartillagna stjórnarandstöðunnar, heldur hefur forseti reynt að taka á dagkrá frumvörp og þingsályktunartillögur þingmanna ekkert síður en málaskrá ríkisstjórnar. Það hefur tekist það vel að sennilega bíður ekkert mál að þessum þingdegi loknum.