[13:36]
Umhverfisráðherra (Guðmundur Bjarnason):
Hæstv. forseti. Eins og fram kom í máli hv. fyrirspyrjanda, hv. þm. Ögmundar Jónassonar, er auðvitað til vansa fyrir ráðuneyti byggingar- og skipulagsmála að aðgengi fatlaðra skuli vera með þeim hætti sem nú er. Ég hef lýst því yfir, eins og hann vitnaði til, á opinberum fundi að ég vildi reyna að beita mér fyrir því að á þessu yrði breyting og ég vonast til þess að svar mitt gefi nokkrar væntingar í þá átt.
Hvað aðalskrifstofu umhvrn. varðar var ákveðið seint á árinu 1991 að taka á leigu til tíu ára húsnæðið að Vonarstræti 4, sem er byggt upp úr 1920 og er í eigu Reykjavíkurborgar. Í því húsi fer fram meginstarfsemi aðalskrifstofu ráðuneytisins og er þar ekki aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Ráðuneytið hefur gert ítrekaðar tilraunir á undanförnum þremur árum til að fá fjármuni til að koma upp í húsinu aðgengi fyrir hreyfihamlaða en hvorki fengið jákvæð viðbrögð frá eigendum hússins, sem við höfum reynt að fá til samkomulags um að leysa þetta mál, eða fjárveitingarvaldinu. Í fyrra náðist að lokum samkomulag við Reykjavíkurborg um þátttöku í framkvæmdinni svo og fékkst vilyrði fyrir fjárveitingu úr ríkissjóði til verksins eins og fram kom reyndar í máli hv. fyrirspyrjanda. Það er nú búið að gera þessa áætlun um framkvæmdir að verkinu sem áætlað er að muni ljúka um mitt þetta ár og mun þá skapast aðgengi fyrir hreyfihamlaða að skrifstofum ráðuneytisins. Verður með því móti komið á fullu aðgengi hreyfihamlaðra að fyrstu hæð hússins en þar er afgreiðsla ráðuneytisins svo og fundarsalir. Að breyta húsinu frekar eða hafa fullt aðgengi að öðrum hæðum þess er hins vegar miklu meira verk og mundi kosta miklu meiri fjármuni. Ég vona að þetta teljist mikil bót þann tíma sem ráðuneytið verður í þessu húsnæði, sem er eins og segir leiguhúsnæði til tíu ára.
Í fyrirsögn fyrirspurnarinnar er reyndar talað um fleira en ráðuneytið sjálft og spurt um stofnanir þess. Þar sem ég hafði nú ekki lesið fyrirspurnina betur en svo hafði ég gert ráð fyrir því að þurfa e.t.v. að svara svolítið til um það og gæti, af því ég hef enn tvær mínútur til umráða, sagt frá því. Þar er því miður misjöfn aðstaða, sums staðar er aðgengið gott, annars staðar ekki. Þar er um að ræða allmargar stofnanir. Í fyrsta lagi nefni ég Náttúruverndarráð en sú stofnun er í húsnæði Fasteigna ríkisins að Hlemmi 3 í Reykjavík en það húsnæði er byggt 1950. Það verður að segjast að þar má heita algerlega óaðgengilegt fyrir hreyfihamlaða. Þar er einnig til húsa Náttúrufræðistofnun og Náttúrugripasafn þannig að þetta er mál sem er erfitt að leysa, bæði mjög dýrt úr að bæta og reyndar ekki fyrirhugaðar framkvæmdir á því húsi. Það er lyfta í húsinu en hún er í fyrsta lagi ekki aðgengileg fyrir hjólastóla og þar að auki eru tröppur bæði utan dyra og innan til að komast að lyftunni. Það er auðvitað óviðunandi. Embætti veiðistjóra er hins vegar í bráðabirgðaaðstöðu á annarri hæð í nýju húsnæði að Hafnarstræti 97 á Akureyri og þar er fullt aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Það er fyrirhugað að sú stofnun flytji milli hæða í þessu sama húsi en þar er vel séð fyrir aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Hollustuvernd ríkisins er í húsi að Ármúla 1a, sem er byggt 1970. Þar er hægt af jarðhæð hússins að komast beint inn af bílastæðum með lyftum um allt húsið og má því segja að þar sé viðunandi aðgengi. Skipulagsstjóri ríkisins er til húsa að Laugavegi 66. Fyrir utan húsið er sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða sem eiga auðvelt með að komast inn að lyftu á jarðhæð hússins og með henni upp á efri hæðir þess. Það er því fullt aðgengi fyrir hreyfihamlaða um alla þá stofnun. Sama má segja um Landmælingar Íslands sem eru til húsa að Laugavegi 178. Þar má teljast viðunandi aðgengi með lyftu af jarðhæð hússins. Það er með Náttúrufræðistofnun eins og Náttúruverndarráð og þarf ekki að orðlengja um það, hún er í sama húsi. Setur Náttúrufræðistofnunar á Akureyri er eins og er í gömlu húsnæði í eigu Akureyrarbæjar þar sem ekki er aðgengi fyrir hreyfihamlaða en fyrirhugað að sú stofnun flytji í sama húsnæði og embætti veiðistjóra að Hafnarstræti 97 fyrir mitt þetta ár. Þá verður aðgengi þar í fullkomnu lagi.
Að lokum örfá orð um Veðurstofuna en hún er í eigin húsnæði að Bústaðavegi 9. Það hús er byggt 1970. Ekki er mögulegt fyrir hreyfihamlaða að komast inn í húsið í gegnum aðalinngang þess en mögulegt er að komast í gegnum kjallara og með lyftu upp á efri hæðir.
Í fyrra var ráðist í löngu tímabærar viðgerðir á húsinu og er ráðgert jafnvel á þessu ári eða því næsta að lagfæra útitröppur hússins þannig að þar sé gerð greiðari leið fyrir hreyfihamlaða inn um aðalinngang. Þar með yrði það hús einnig vel aðgengilegt.
Virðulegur forseti. Ég hef nýtt þann tíma sem mér er heimilaður til að svara fleiru en spurt var um af því að ég skildi fyrirspurnina þannig. En ég vona að það sé ljóst hver staða málsins er varðandi aðalskrifstofur ráðuneytisins.