[13:45]
Fyrirspyrjandi (Ögmundur Jónasson):
Hæstv. forseti. Ég legg fram tvær spurningar til hæstv. félmrh. um könnun á stöðu fatlaðra á vinnumarkaðinum.
1. Hversu langt er um liðið síðan síðasta könnun á stöðu fatlaðra á vinnumarkaðinum skv. 31. gr. laga nr. 59/1992 var gerð?
2. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að slík könnun verði gerð og ef svo er, þá hvenær?
Í 31. gr. laga um málefni fatlaðra nr. 59/1992 segir m.a., með leyfi forseta:
,,Félagsmálaráðuneytið beitir sér fyrir, í samráði við samtök fatlaðra og aðila vinnumarkaðarins, að reglulega sé gerð könnun á stöðu fatlaðra á vinnumarkaðinum og í framhaldi af því verði gerðar tillögur um úrbætur.``
Eftir því sem ég kemst næst hefur könnun unnin í samvinnu við samtök fatlaðra og aðila vinnumarkaðar ekki verið gerð frá því þessi lög voru sett. Hins vegar hefur legið fyrir skýrsla frá því í mars í fyrra frá nefnd sem falið var að útfæra tillögur í atvinnumálum fatlaðra á almennum vinnumarkaði og í vernduðu starfsumhverfi, ekki síst með hliðsjón af nýjum lögum um málefni fatlaðra. Nefndin hefur lagt fram tillögur í 15 liðum. Hæstv. ráðherra hefur nú þegar lýst skoðun sinni á einstökum tillögum nefndarinnar í viðtali við Morgunblaðið í desember sl. og setur hæstv. ráðherra þar ákveðna fyrirvara og lýsir sig í einstökum atriðum ósammála tillögum nefndarinnar. En hverjar eru hans eigin tillögur í atvinnumálum fatlaðra? Í ljósi laganna frá 1992 og skýrslunnar frá í fyrra er spurst fyrir um hvort ráðherra muni beita sér fyrir formlegu samstarfi á milli ráðuneytisins, samtaka fatlaðra og aðila vinnumarkaðarins í atvinnumálum fatlaðra. Það hlýtur að vera skýlaus krafa að kannanir séu gerðar á stöðu þessara mála eins og lög kveða á um og að sjálfsögðu brugðist við niðurstöðum sem fram koma við slíkar athuganir.