[18:57]
Flm. (Kristján Pálsson) (andsvar):
Herra forseti. Ástæða þess að þetta frv. þingmanna Sjálfstfl. var lagt fram núna var að hv. þm. Þjóðvaka höfðu þegar lagt fram frv. svipaðs efnis og fengið að tengja það frv. ríkisstjórnarinnar. Þess vegna var okkur bent á það að það gæti verið þægilegt að hafa þessi þrjú frv. saman í umræðunni. (Gripið fram í: Hver benti á það?) Það var ekki vegna þess að við hefðum verið að reikna það sérstaklega út. Varðandi hitt frv. sem er um efnahagslögsöguna (Gripið fram í: Hver benti á það?) get ég upplýst það að þegar við sjáum hvernig framgangur okkar frv. verður þá tökum við náttúrlega ákvörðun um það hvort við förum áfram með annað frv. um breytingar á efnahagslögsögunni. En eins og ég hef sagt margoft í þessari umræðu þá viljum við tryggja að eignarhald okkar yfir fiskimiðunum sé ótvírætt. Ég benti á það í framsöguræðu minni að ég teldi að það ætti að setja inn í stjórnarskrána ákvæði um að fiskimiðin séu sameign þjóðarinnar. Þó að ég efist ekki neitt um það þá er það eitt af þessum sálfræðilegu atriðum sem hv. þm. Ágúst Einarsson hefur talað um. Ég tel að það þurfi að hafa þetta þannig að enginn efist. En í mínum huga er ekki neitt vandamál með það þó svo að farið sé út í 49% beina eignaraðild. Ég held að ég hafi svarað þeim spurningum sem máli skipta af þeim sem hv. þm. Magnús Stefánsson beindi til mín.