[14:28]
Jón Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Hv. 9. þm. Reykn. sagði að hér hefði orðið stefnubreyting í vegamálum og væru teknar upp smáskammtalækningar á ný eins og hann orðaði það. Ég viðurkenni að það er stefnubreyting þarna. Það er gengið á framkvæmdaátakið. Ég var ekkert hrifinn af þeirri skiptingu á sínum tíma og harma það ekki þó að þar sé breytt um. Hins vegar er almennur niðurskurður til vegagerðar til þess að ná markmiðum í ríkisfjármálum á næstu tveimur árum um að reka ríkissjóð án halla.
En ég verð að segja það að mér finnst til nokkurs mikils ætlast frá þjóðhagslegu sjónarmiði ef hv. þingmenn á höfuðborgarsvæðinu ætlast til þess að það sé fullur dampur á vegagerð ofan í allar þær stórframkvæmdir sem hér eru fyrirhugaðar og ofan í þær miklu framkvæmdir sem þingið var að gefa grænt ljós á fyrir jól með litlum fyrirvara og allir stóðu að í rauninni, um jarðgöng undir Hvalfjörð. Ég tel að við þessar aðstæður sé rétt að draga aðeins úr í framkvæmdaátakinu þó ég sé með því ekki að mæla gegn vegaframkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu eða gera lítið úr þeirri þörf.