Vegáætlun 1995--1998

Þriðjudaginn 13. febrúar 1996, kl. 16:19:41 (2974)

1996-02-13 16:19:41# 120. lþ. 89.1 fundur 295. mál: #A vegáætlun 1995--1998# (endurskoðun fyrir 1996) þál. 12/1996, GE (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 89. fundur


[16:19]

Gísli S. Einarsson (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka ágæt svör hv. form. samgn. Ég ítreka beiðni mína um að vel verði tekið á málinu og menn skoði nákvæmlega þá tillögu sem fyrir liggur um aukna notkun steinsteypu til slitlagsgerðar. Ég mælist til þess úr þessum stóli við hv. form. að til verði kvaddir aðilar sem hafa gefið og gert tilboð í útlögn á steinsteypu og þeir sem hafa lagt hvað mest kapp á að koma steinsteypu sem slitlagsefni á vegi á Íslandi og við þá rætt um leið og aðra.