[17:08]
Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):
Herra forseti. Það var eitt atriði sem vakti sértaka athygli mína hjá hv. þm. Hjörleifi Guttormssyni. Hann minntist sérstaklega á Austurland og Vestfirði þegar hann talaði um þau kjördæmi sem væru verst veguð. Nú er alltaf hæpið að tala um vegamál eða samgöngumál á slíkum grundvelli eða forsendum, þ.e. hversu mikið af vegum séu með bundnu slitlagi og hversu margir séu með malarslitlagi. En ég hygg að það liggi alveg ljóst fyrir að Norður-Þingeyjarsýsla og Vopnafjörður, þau samliggjandi byggðarlög sem þar eru, hafa kannski eitthvert versta vegakerfi landsins. Í Norður-Þingeyjarsýslu er hverfandi bundið slitlag. Ég hygg að í engum öðrum byggðarlögum sé ástandið jafnömurlegt að þessu leyti og auðvitað er ekki uppbyggður vegur þangað frá nærliggjandi vöruhöfn eins og t.d. Húsvík. Ég held því að það sé mjög hæpið að tala á þessum forsendum. Mér finnst það svona bera keim af því að vera með kjördæmapot kannski. Ég held við eigum frekar að reyna að sameinast um að finna einhver úrræði sem bjargi hinum afskekktustu byggðum heldur en tala á þessum grundvelli.