[14:23]
Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Það kvað nú við dálítið annan tón í þessari ræðu. Ég heyrði ekki betur en að hv. þm. viðurkenndi að þær aðstæður sem ríkja í greininni í dag eru þær sem ég dró upp. Það hefur ekki háð íslenskum fyrirtækjum upp á síðkastið að ekki væri vilji fyrir hendi til að fjárfesta í þeim ef hlutafjárútboð hefur farið fram. Hinu get ég verið sammála hv. þm. um að sjávarútvegurinn almennt þyrfti að styrkjast. Eiginfjárhlutfallið þar er of lágt eftir langvarandi taprekstur undangenginna ára. Í sjálfu sér er kannski meiri ástæða til að hafa áhyggjur af ýmsum miðlungsstórum og minni fyrirtækjum sem ekki eru almennt komin út á markað enn og hafa ekki náð að nota þessa leið til að styrkja sína stöðu. Ég er á hinn bóginn alveg sannfærður um að þau fyrirtæki yrðu ekki fyrst og fremst valkostur útlendinga í fjárfestingum. Þau mundu áfram vera í sömu stöðu þó að þessi leið yrði farin sem hv. þm. mæla hér með.
Svo vil ég þótt það sé undir öðrum dagskrárlið, herra forseti, spyrja að því hvernig ætlunin er að þessi umræða fari fram, að viðstöddum engum ráðherrum sem búið er að biðja um og reyndar búið að lofa að verði hér viðstaddir umræðuna, forustumenn stjórnarflokkanna og hæstv. iðn.- og viðskrh. eru ekki í salnum.
(Forseti (RA): Gerðar verða ráðstafanir til að koma þessum skilaboðum til hæstv. ráðherra.)