Þorvaldur T. Jónsson fyrir IP

Mánudaginn 19. febrúar 1996, kl. 15:02:09 (3110)

1996-02-19 15:02:09# 120. lþ. 92.93 fundur 194#B varamaður tekur þingsæti#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 92. fundur

[15:02]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Vesturlandskjördæmi, Þorvaldur T. Jónsson bóndi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Ingibjörg Pálmadóttir, 1. þm. Vesturl.``

Þorvaldur T. Jónsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.