Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):
Herra forseti. Ég skildi ekki alveg fyrri athugasemd hv. þm. Auðvitað er Póstur og sími á B-hluta fjárlaga og auðvitað ber Pósti og síma að gera fjárln. grein fyrir fjárfestingum næsta árs og leita eftir þeim heimildum sem nauðsynlegar eru til þess að starfsemin verði rekin. Það er svo um allar opinberar stofnanir eins og hv. þm. á að vera kunnugt.
Um hið síðara málið er það að segja að samkvæmt frv. er gert ráð fyrir því að einungis eitt hlutabréf verði gefið út og það verði í eigu ríkisins og óheimilt að selja það. Þannig er formlega séð ekki hægt að tryggja það betur á þessari stundum að fyrirtækið verði áfram í eigu ríkissjóðs. Hitt er svo annað mál eins og hv. þm. veit jafn vel mér að hvorki ég né hann né sá hópur sem hér situr getur ábyrgst hvað Alþingi kunni að gera einhvern tímann á næstu öld, ég tala nú ekki um ef hvorugur okkar yrði þar.