Stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar

Þriðjudaginn 27. febrúar 1996, kl. 15:31:18 (3294)

1996-02-27 15:31:18# 120. lþ. 96.1 fundur 331. mál: #A stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar# frv. 103/1996, GÁS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 96. fundur

[15:31]

Guðmundur Árni Stefánsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér leiðast þessar spurningar og svör. Ég verð taka hv. þm. afsíðis í tíma þannig að við séum ekki að tefja tíma þingsins. En ég mun beita mér fyrir því, virðulegi forseti, vegna þessarar spurningar að fá útskrift af ræðu minni eins fljótt og nokkur kostur er og koma henni í hendur hv. þm. þannig að hann fái botn í þetta allt saman.