Stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar

Þriðjudaginn 27. febrúar 1996, kl. 17:24:23 (3314)

1996-02-27 17:24:23# 120. lþ. 96.1 fundur 331. mál: #A stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar# frv. 103/1996, ÁMM (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 96. fundur

[17:24]

Árni M. Mathiesen (andsvar):

Herra forseti. Það er kannski ekki með neinum ólíkindum sem fram hefur komið hér í dag hjá hv. þingmönnum Alþfl. að þeir hafa hvor sína skoðun á málinu og hvorugur hefur treyst sér til að úttala sig um það hver væri stefna Alþfl. Þeir vísa hins vegar til þess að ég skilji þá ekki og að þeir skuli útskýra þetta fyrir mér hér í hliðarsölum á eftir þegar þeir hafa fengi útskrift af ræðum sínum. Við skulum vona að þeim takist betur að útskýra þetta fyrir mér þá en þeim hefur tekist að útskýra þetta fyrir þingheimi í ræðustólnum í dag.