Evrópuráðsþingið 1995

Fimmtudaginn 29. febrúar 1996, kl. 17:25:15 (3473)

1996-02-29 17:25:15# 120. lþ. 99.8 fundur 338. mál: #A Evrópuráðsþingið 1995# skýrsl, TIO (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 99. fundur

[17:25]

Tómas Ingi Olrich (andsvar):

Virðulegi forseti. Það vildi svo til að ég nýtti allan þann tíma sem ég hafði í fyrra skiptið sem ég gat tekið til máls um þetta mál til að fjalla um störf Evrópuráðsins í heild en ég hef heimild til þess að taka aftur til máls um þetta mál og mun gera það og mun þar af leiðandi koma fram með þær skýringar sem hv. þm. bað um og bað réttilega um því að það er mjög eðlilegt að það verði skýrt í nokkru máli.