Flugmálaáætlun 1996--1999

Þriðjudaginn 05. mars 1996, kl. 13:52:22 (3499)

1996-03-05 13:52:22# 120. lþ. 100.4 fundur 365. mál: #A flugmálaáætlun 1996--1999# þál. 13/1996, StG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 100. fundur

[13:52]

Stefán Guðmundsson (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir yfirlýsingu ráðherrans og fagna því ef það liggur skýrt fyrir frá Reykjavíkurborg að engin áform séu uppi um það að flytja þessa starfsemi sem nú er í Vatnsmýrinni. Það ættu því ekki að vera vandkvæði á því að samgn. þingsins, þegar hún fjallar um flugmálaáætlunina, fái þessa samþykkt sem gerð hefur verið eins og kom fram hjá hæstv. ráðherra.