Svavar Gestsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þessi orð hv. þm. Mér finnst að þau séu jákvætt innlegg í málið og ég skil vel skoðun hans á því að það þurfi að fá botn í þessi mál að því er varðar Reykjavíkurflugvöll. Út af fyrir sig held ég að hann sé til í meginatriðum að því er varðar tímabil þessarar flugmálaáætlunar. Auðvitað getur það verið að menn komist að einhverri annarri niðurstöðu og þá er bara að horfast í augu við þann veruleika. En það er mest um vert að við viðurkennum vandann og það sé víðtækur skilningur á því í þessari stofnun.
Að vísu hafa verið deildar meiningar um það hvort ástandið á Reykjavíkurflugvelli sé á hættumörkum eða hvort þar sé enginn háski á ferðum svo að ég vitni orðrétt í fyrirsagnir í Morgunblaðinu frá 5. des. í fyrra sem sögðu frá umræðum á Alþingi þar sem þá var haft eftir hv. 18. þm. Reykv. að ástandið væri á hættumörkum en aftur á móti var það haft eftir hæstv. samgrh. að það væri enginn háski á ferðum. Út af fyrir sig held ég að þetta mál liggi þannig að þarna getum við alþingismenn ekki verið dómarar. Ég held að við verðum að kalla til faglega aðila í máli af þessum toga og fá ráð þeirra.
Ég vil nefna það að lokum, hæstv. forseti, að ég teldi eðlilegt að haft verði haft samráð við þingmenn Reykvíkinga í sambandi við þessa flugmálaáætlun eins og þingmenn annarra kjördæma að svo miklu leyti sem það kann að vera gert af hálfu samgn.