Flugmálaáætlun 1996--1999

Þriðjudaginn 05. mars 1996, kl. 15:43:01 (3536)

1996-03-05 15:43:01# 120. lþ. 100.4 fundur 365. mál: #A flugmálaáætlun 1996--1999# þál. 13/1996, samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 100. fundur

[15:43]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil einungis ítreka það sem ég sagði áður. Auðvitað er óhjákvæmilegt að endurskoða í heild afstöðuna til flugvallanna í hinum nýja Ísafjarðarkaupstað, frá Þingeyri til Ísafjarðar. Á það er einnig að líta að innanlandsflug verður frjálst frá 1. júlí á næsta ári og af þeim sökum tók ég sérstaklega fram að ég óskaði eftir því að samgn. liti til þessa máls.