Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég tók þetta sérstaklega fram vegna þess að hv. ræðumaður nefndi það að menn hefðu verið að velta fyrir sér ákvörðunum um staðsetningu og vildi að það kæmi alveg skýrt fram að vilji borgarstjóra er kominn fram.
Varðandi öryggisþættina sem komu einnig fram hjá hv. ræðumanni varða öryggismálin fleiri en þá Reykvíkinga sem búa í nágrenninu og óþægindin af fluginu yfir borgina koma auðvitað fleirum við en þeim sem búa hér. Hér starfar líka fjöldi manns og einnig varða öryggismálin og flugið hér yfir þá farþega sem fara hér um.