Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. Árni Johnsen verður að virða mér það til vorkunnar ef honum þykir ég ekki vera mjög vaxinn til flugs. Þegar hann var í ræðustól áðan minnti hann mig hins vegar á útdauða fuglategund sem aldrei náði í öllu sínu dapurlega lífi að lyfta sér nokkurn tíma til flugs en hún tengist einmitt Vestmannaeyjum og heitir geirfuglinn.
Herra forseti. Ég undrast það hversu óstinnt fulltrúar Sjálfstfl. taka þeim sannindum sem ég flutti hérna áðan en þau eru einfaldlega að í tíð núverandi meiri hluta Reykjavíkurborgar er bersýnilegt að flugmálin eru tekin miklu fastari tökum. Það er í gangi vinna í tengslum við undirbúning að nýju aðalskipulagi sem miðar að því að festa flugvöllinn sem miðstöð innanlandsflugs í landinu. Ef hv. þm. Árni Johnsen hefði hlustað á alla mína ræðu, en eins og þingheimur tók eftir kom hann ekki í salinn fyrr en ræða mín var vel hálfnuð, hefði hann komist að því að ég var honum nákvæmlega sammála um það sem hann bar fram í niðurlagi tölu sinnar. Ég er honum sammála um að það eru hagsmunir bæði borgarbúa og þeirra sem búa á landsbyggðinni að hafa áfram miðstöð innanlandsflugsins nánast í borgarmiðjunni. Menn verða hins vegar að gæta fyllsta öryggis og ég gat þess enn fremur að það væri einnar messu virði að menn pældu í því, hvort það ætti e.t.v. að flytja ferjuflugið og mögulega kennsluflugið úr borginni. Ég tók sérstaklega fram að mér þætti þetta með ferjuflugið vera þess virði að skoða mjög rækilega.
Staðreyndin er einfaldlega sú að það er gott samkomulag með hæstv. samgrh. og hinni nýju og vösku borgarstjórn Reykjavíkur sem hefur tekið af skarið í þessum efnum. Það er einfaldlega svo að það voru efasemdir í hópi þungavigtarmanna í Sjálfstfl. fram eftir öllum síðasta áratug, ég veit það vel. Ég sat í þessari borgarstjórn annað veifið.