Siglingastofnun Íslands

Miðvikudaginn 06. mars 1996, kl. 18:43:41 (3655)

1996-03-06 18:43:41# 120. lþ. 102.14 fundur 173. mál: #A Siglingastofnun Íslands# frv. 6/1996, Frsm. EKG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 102. fundur

[18:43]

Frsm. samgn. (Einar K. Guðfinnsson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Því er til að svara og skemmst frá því að segja að sú umræða fór aldrei fram í nefndinni hvort ástæða væri til þess að breyta um nafngift. Menn töldu einfaldlega að þetta lýsti ágætlega hlutverki stofnunarinnar, Siglingastofnun Íslands, þannig að þetta mál var ekkert rætt þar frekar.