Kirkjugarðurinn á Bessastöðum

Mánudaginn 11. mars 1996, kl. 15:25:30 (3746)

1996-03-11 15:25:30# 120. lþ. 104.1 fundur 219#B kirkjugarðurinn á Bessastöðum# (óundirbúin fsp.), dómsmrh.
[prenta uppsett í dálka] 104. fundur

[15:25]

Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Ég þekki ekki til þessa máls og get þess vegna ekki gefið viðhlítandi skýringar á þeim ákvörðunum sem hv. þm. vitnaði til en minni einvörðungu á að hlutaðeigandi kirkjugarðsstjórnir taka ákvarðanir um þau málefni sem lúta að viðkomandi kirkjugörðum og vitaskuld er síðan hægt að skjóta þeim með stjórnsýslukæru til æðra stjórnvalds ef aðilum þykir nauðsynlegt að fá slíkan úrskurð.