Innheimtustofnun sveitarfélaga

Mánudaginn 11. mars 1996, kl. 19:14:10 (3805)

1996-03-11 19:14:10# 120. lþ. 104.11 fundur 356. mál: #A Innheimtustofnun sveitarfélaga# (samningar við skuldara) frv. 71/1996, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 104. fundur

[19:14]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég býð fólk yfirleitt velkomið í félmrn. en ég hef enga peninga til að gefa því. Ef Alþingi setti lög eða heimildir handa mér til að fella niður skuldir handa konum fyrir einhverjar óskilgreindar skuldir, þá væri ég manna glaðastur að geta hresst þær við og gefið þeim peninga. En eins og staðan er hef ég enga möguleika á því.