Jón Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Í seinni ræðu hv. 4. þm. Vestf. kom fram að hann sagði að menn hefðu barist fyrir algerlega óbreyttu búsetumunstri í gegnum árin. (SighB: Framan af, sagði ég, framan af.) Framan af. Ég vildi aðeins koma inn á þetta. Ég held að þetta sé fullmikið sagt. Ég held a.m.k. að allir geri sér grein fyrir því að búsetan breytist og það er ekki hægt að tryggja búsetu á öllum byggðum bólum sem eru byggð í dag. Hins vegar hef ég alltaf litið á baráttuna í byggðamálum sem baráttu fyrir því að halda byggðinni og það eigi ekki að fara í aðgerðir til þess að flýta fyrir byggðaröskun eins og hefur oft verið. Bardaginn hefur staðið um það og ég tel að t.d. það að tryggja byggð í þéttbýlisstöðum landsins sé þjóðhagslega hagkvæmt. Það er svo komið svo að víða er búið að byggja upp mikla þjónustu í þessum byggðakjörnum og ef þau eru lögð niður, þá þarf að byggja alla þessa þjónustu upp á nýtt í höfuðborginni. Mýmörg dæmi eru um að það þarf að verja aftur í það mjög miklum fjármunum þannig að það má ekki gleyma þessari baráttu varðandi byggðamálin sem er þjóðhagslega hagkvæm til að halda byggðinni í landinu.
Að bera saman leigugjald fyrir hús og aðgang að fiskimiðunum eru náttúrlega algerlega ósambærilegir hlutir og ég er alveg hissa á hv. 4. þm. Vestf. að leggja upp með slíkan málflutning.