Fyrirspyrjandi (Svavar Gestsson):
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. iðnrh. fyrir svörin. Mér fannst satt að segja í fyrri hluta svaranna örla á metnaðarleysi í ræðu hans þar sem hann vísaði til þess að fjmrn. réði yfir málaflokknum. En svo færðist ráðherrann heldur í aukana þegar leið á svarið þannig að það var mjög til bóta sem hann sagði að lokum, þ.e. að það þyrfti bersýnilega að stytta tímann. Ég að það sé aðalatriðið að tryggja að kærumeðferðin taki miklu styttri tíma.
Í þeim efnum held ég að tvennt þurfi að koma til. Annað er að það séu sett í lög skýrari reglur um þennan tíma, þ.e. hversu langan tíma má fjmrn. í lengsta lagi taka sér í að úrskurða í svona málum. Ég held að það eigi að setja stífar reglur um það. Í öðru lagi held ég að það eigi að tryggja iðnaðinum, Samtökum iðnaðarins og iðnrn. beinni áhrif á kærunefndina sjálfa og hugsanlegar niðurstöður hennar. Ég tel að þetta séu óhjákvæmilegar lágmarksbreytingar sem þarna verður að gera. Ég segi þetta fyrst og fremst í því skyni, hæstv. forseti, að við verðum að tryggja að íslenskur iðnaður búi við algerlega sambærileg skilyrði að því er þetta varðar og iðnaður nágrannaríkjanna. Það er það sem við erum að tala um. Við erum ekki að tala um forréttindi íslensks iðnaðar að neinu leyti. Staðreyndin er sú að í nágrannaríkjum okkar og ríkjunum á EES-svæðinu er eftirlitskerfi með undirboðum mjög virkt og mjög öflugt. Það eina sem ég er að fara fram á fyrir hönd þeirra aðila úr íslenskum iðnaði sem hafa talað við mig er að þeir njóti sambærilegra aðstæðna og önnur iðnaðarfyrirtæki á Evrópska efnahagssvæðinu.