Össur Skarphéðinsson:
Herra forseti. Ég tek undir með hv. þm. Kristni H. Gunnarssyni. Ég tel að þetta setji mjög slæman brag á þingið hversu fáir mæta til fundar, sérstaklega þegar menn eru að ræða jafnmikilvægt mál og hér er.
Ég tek líka undir með hv. þm. að mér finnst að stjórnarliðið gæti gert talsvert betur en senda hingað þrjá menn þó öflugir séu hver með sínum hætti. Ég tek undir með hæstv. forseta að það gengur alls ekki að nefndir séu að setja á fundi þegar búið er að boða til þingfunda. Ég nefni sérstaklega hv. efh.- og viðskn. annars vegar og hins vegar hv. sjútvn.
Eins og hæstv. forseti hefur getið þá er fundur með þeim utan bæjar á sama tíma og hér er boðað til þingfundar til þess að ræða mikilvægt mál. Nú er það að vísu svo að hæstv. forseti hefur gert við þetta strengilegar athugasemdir. Ég tel að forseti hafi í öllum greinum reynst mjög röggsamur en ég tel að hann eigi að taka af skarið og hreinlega banna nefndum að halda fundi með þessum hætti.
Að því er varðar þá nefnd sem ég veiti forstöðu, heilbr.- og trn. þá er óskað eftir fundi með henni og félmn. í hádeginu þegar líkur voru á að það væru þingfundartími. Ég tók það sjálfur mjög óstinnt upp og mun ekki fara til þess fundar og ég tel að það eigi ekki að setja fundi nefnda á meðan við erum með ákveðinn þingfundartíma og hvet hæstv. forseta til þess að taka af festu á þessu og helst að senda þeim nefndum sem hér hafa gerst sekar bréf um að þetta endurtaki sig ekki.