Svavar Gestsson (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegur forseti. Ég vil nú sérstaklega þakka hv. þm. Valgerði Sverrisdóttur fyrir að greiða fyrir þingstörfum með þeim hætti sem hún gerði hér í síðari hluta athugasemdar sinnar og ætla ekki að ræða það mál frekar. En jafnframt vil ég þakka hv. þm. fyrir stuðninginn við það að málið fái meðferð í nefnd. Mér finnst mjög mikilvægt þingræðislegt atriði að það sé þannig að nefndirnar fái mál ef óskað er eftir því og taki þau til meðferðar. Vegna þess að ef því er neitað þá er verið að gera umræðurnar hér í salnum hér að markleysu, með fullri virðingu fyrir meðferð nefndanna sjálfra. Þess vegna tel ég að það sé þingræðislega rétt niðurstaða hjá hv. þm. að það sé eðlilegt að málið sé tekið til meðferðar eins og hér var stungið upp á áðan. Og ég þakka henni fyrir þá afstöðu þó að hin hafi ekki verið til fyrirmyndar.