Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Áður en gengið er til dagskrár vill forseti kynna eftirfarandi bréf:
,,Með vísan til 3. mgr. 55. gr. laga um þingsköp Alþingis leyfi ég mér að óska þess fyrir hönd þingflokks Alþfl. að umræðutími við 1. umræðu um frv. til laga um stéttarfélög og vinnudeilur verði tvöfaldaður vegna mikilvægis málsins.
Rannveig Guðmundsdóttir.``
Þessi er réttur þingflokksins og ræðutími verður því tvöfaldur.