Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Menn hafa verið að tala um morgunþætti Ríkisútvarpsins. Það var einn slíkur í morgun. Þar voru hæstv. félmrh. og forseti Alþýðusambands Íslands, Benedikt Davíðsson. Hæstv. félmrh. spurði forseta Alþýðusambandsins hvort menn væru hræddir við lög, að sett yrðu lög í landinu. Mig langar til að svara fyrir mitt leyti. Já. Menn eru hræddir við lagasetningu þessarar ríkisstjórnar. Og ég er að rifja það upp hvenær áheyrendapallar þingsins hafa verið þéttsetnir og hverjir hafa setið þá. Hafa þar verið fulltrúar frá Verslunarráði? Hafa þar verið fulltrúar frá Vinnuveitendasambandi Íslands? Hafa þar verið eigendur Kaupþings eða Fjárfestingarfélagsins? (Gripið fram í: Þeir eiga menn í salnum.) Nei. Það hafa verið fulltrúar frá Öryrkjabandalaginu. Það hafa verið fulltrúar frá Sjálfsbjörg. Það hafa verið fulltrúar frá verkalýðshreyfingu, fólk skelfingu lostið þegar ríkisstjórn Davíðs Oddssonar gerist athafnasöm við lagasetningu. Menn óttast lagasetningu þessarar ríkisstjórnar og menn mótmæla þeim vinnubrögðum sem hér eru viðhöfð.