Ágúst Einarsson:
Herra forseti. Því frv. sem hér er til umræðu má skipta í tvennt. Það er í fyrsta lagi málsmeðferðin eða aðferðafræðin sem þetta mál hefur fengið.
Eins og fram hefur komið var starfandi nefnd aðila vinnumarkaðarins sem fjallaði um tiltekna efnisþætti sem lutu að þeim ramma sem er um stéttarfélög og vinnudeilur. Samkvæmt öllum þeim upplýsingum sem hafa borist af starfi þeirrar nefndar var ljóst að málin voru þar í góðum farvegi og menn áttu von á því að niðurstaða fengist. Það er auðvitað tvennt sem var þar til skoðunar, annars vegar efnisatriðin í nýjum samskiptareglum og hins vegar formið á þeim samskiptum.
Herra forseti. Ég sé að hæstv. félmrh. hefur brugðið sér frá. Ég óska eftir því að gerðar verði ráðstafanir til að fá hann hingað í salinn.
(Forseti (StB): Forseti mun gera það.)
Ég mun þá gera hlé á máli mínu þar til hæstv. ráðherra er kominn í þingsalinn.
(Forseti (StB): Forseti vill biðja hv. þingmenn að sýna biðlund, en mundi kannski trufla hv. þm. og ræðumann með því að lesa útbýtingu á meðan beðið er eftir hæstv. félmrh.)
Það er í góðu lagi.