Sighvatur Björgvinsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Fyrir skömmu stóð til af hálfu eins hæstv. ráðherra í ríkisstjórninni að knýja í gegnum þingið skerðingu á lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna í mikilli andstöðu við þá. Við það tækifæri hjó hæstv. forsrh. á hnútinn með því að lýsa því yfir að slíkt yrði ekki gert nú í andstöðu við viðkomandi launþega. Nú vil ég spyrja hæstv. forsrh. og þakka honum fyrir þær upplýsingar sem hann gaf í ræðu sinni hér áðan: Er hann reiðubúinn til þess við þær aðstæður sem honum eru nú ljósar að gefa þau fyrirheit til Alþýðusambands Íslands að þetta mál verði ekki knúið í gegn í andstöðu við Alþýðusambandið? Ég bendi hæstv. forsrh. á að tveir þingmenn úr hans eigin flokki lýstu hér rétt áðan, annar andstöðu við frv. og hinn vilja til umtalsverðra breytinga á því. Þannig að það er ekki einhugur í hans eigin flokki um frv. Ég ítreka spurningu mína: Er hann reiðubúinn til að skýra frá því hér og nú að hann muni beita sér fyrir því að frv. verði ekki knúið í gegnum Alþingi í fullri andstöðu við Alþýðusambandið?