Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Þessar yfirlýsingar, þessi svör hæstv. forsrh. eru mjög alvarleg í ljósi þess hvernig málið liggur fyrir. Það segir í ályktun formannafundar Alþýðusambands Íslands í fyrsta lagi, að stjórnvöld hafi gefið yfirlýsingu með sínum vinnubrögðum um að þau óski ekki lengur eftir hefðbundnu þríhliða samstarfi. Það liggur fyrir að verkalýðshreyfingin lítur svo á að ríkisstjórnin sé að hafna samstarfi við verkalýðshreyfinguna um þróun löggjafar fyrir vinnumarkaðinn. Í öðru lagi telur formannafundurinn frumvörpin vera árás á verkalýðshreyfinguna og í þriðja lagi er krafan sú að þau verði dregin til baka þannig að á nýjan leik geti hafist samskipti þessara aðila á eðlilegum jafnræðisgrundvelli. Það er krafan. Hún liggur algerlega klár fyrir. Og það er alveg sama hvernig hæstv. forsrh. reynir að koma sér undan því að svara þessu, hvort sem hann segir hér gamansögur eða talar óljóst, það dugar ekki. Þetta mun verða krafan og ríkisstjórnin stendur frammi fyrir því að axla þá ábyrgð annaðhvort að fara í þetta stríð við verkalýðshreyfinguna eða bakka og draga frumvörpin til baka. Ég hvet hæstv. forsrh. til að ana ekki lengra út í ófæruna, hugsa sinn gang og best væri auðvitað að hann sæi strax að sér og gæfi hér yfirlýsingu um að frumvörpin verði kölluð til baka.